Faglegt efni
Aðalmeðferð ákveðin í fyrstu verðtryggingarmálunum
Draga fer til tíðinda í fyrstu málum lántakenda gegn lánveitendum er varða lögmæti verðtryggingar.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ákveðið að aðalmeðferð í tveimur fyrstu málunum þar sem reynir á lögmæti verðtryggingar neytendalánasamninga gagnvart íslenskum lagareglum sem fela í sér innleiðingu EES réttar, muni fara fram 5. janúar nk. Annars vegar er um að ræða mál sem lántakandi höfðaði gegn Íslandsbanka og hins vegar sem lántakendur höfðuðu gegn Íbúðalánasjóði. Aðalmeðferð fer nú fram í kjölfar þess að EFTA dómstóllinn hefur veitt ráðgefandi álit um hvernig túlka beri tilskipanir Evrópusambandsins um ósanngjarna skilmála í neytendasamningum, nr. 93/13 og um neytendalán, nr. 87/102.
Einar Páll Tamimi, einn af eigendum Nordik lögfræðiþjónustu, flytur fyrrnefnda málið fyrir lántakanda.
Víst er að mikill titringur er víða vegna hinna víðfemu áhrifa sem niðurstöður málanna geta haft, einkum hafi lántakendur betur.
Búast má við dómum í málunum tveimur fyrir lok febrúarmánaðar.